Monday, September 15, 2014

Af hverju lchf?

Áður en ég get byrjað að útskýra af hverju ég vel að lifa eftir lchf verð ég víst að útskýra hvað lchf er. Ef þú veist hvað það er - skroll oooon. LCHF stendur fyrir: Low carb, high fat. Maður borðar s.s. lítið af kolvetnum, í kringum 20-100 gr. allt eftir hversu "ákafur" maður er. Í Danmörku (þar sem ég bý btw) er talað um "liberal lchf" (frjálslyndt lchf) og "striks lchf" (strangt lchf). Ég borða yfirleitt frjálslyndt en tek ströng tímabil. Þetta er allt einstaklingsbundið, allt eftir hvernig kolvetni hafa árhrif á blóðsykurinn og hvort maður sé "in it" til þess að léttast. Maður borðar s.s. eins lítið af kolvetnum og hægt er, prótein og fitu - helling af fitu. Þetta gerir það að líkaminn byrjar að nota fitu sem aðal brennsluefnið og ræðst á fituna á líkamanum leikandi létt. Maður á þó ekki að vanmeta kaloríurnar, þó svo að þær séu sjaldan taldar á lchf. En ég persónulega, og fleiri sem ég þekki, kemst upp með að borða fleiri kaloríur, en samt léttast eða halda þyngdinni. Líkaminn brennir sykri og fitu öðruvísi. Einnig á lchf, borðar maður 2-3 sinnum á dag. Maður borðar góða máltíð, sem heldur manni söddum að næstu máltíð. Blóðsykurinn er oft mikið stöðugri á lchf, sem gerir að margir með sykursýki velja þennan lífsstíl. Ég get persónulega skrifað undir að stöðugri blóðsykur gerir það að verkum að skapsveiflurnar verða mikið færri! Úff, það var f-ing erfitt að skrifa um lchf svona stutt... en ég vill ekki missa þig alveg strax! Af hverju vel ég svo að lifa á lchf? Ég myndi ljúga ef ég segði að möguleiki á að léttast hafi ekki verið aðlaðandi. Ég léttist frá 72 kg í 68 kg, en þegar líkaminn er kominn í kjörþyngd, þá ákveður hann eiginlega að stoppa sjálfur. Svo ef maður vill léttast meira, er hægt að fasta stöku sinnum og lchf hjálpar við að halda þyngdinni - oooohhh, byrja ég að röfla um eitthvað allt annað. Ég skrifa um föstur og lchf seinna! En það sem var allra mest aðlaðandi var að lchf er gott fyrir fólk med IBS (irriteble bowel syndrome). Sem er alveg gasalega lekkert og skemmtilegt að tala um... það er beisiklí þannig að þarmarnir krampast, það gefur illt í magan, niðurgang, harðlífi og loft í magan! Bara ALLT sem að einhleypar 19 ára stelpur óska sér, sem var einmitt aldurinn þar sem einkennin byrjuðu hjá mér. Ég vona að þið skiljið kaldhæðni. Ég fór í alskonar próf, og komst að því að ég væri med vægt laktose óþol. Það útskrýrði þó ekki allt, þar sem að einkennin héldu áfram eftir að ég hætti að neyta mjólkurvara. Eftir nokkur ár þar sem ég át panodíl og imodium til skiftis rakst ég á Low Fod map. Sem er gert fyrir fólk med IBS. Þar er set plan, þar sem maður forðast sérstakt kolvetni, polyosakkarider. S.s. ég mátti ekki borða hitt, en mátti borða þetta, en samt bara 25 gr, og helst ekki á hverjum degi. Þetta var svo flókið, að ég gafst fljótlega upp... en hélt þó fast í ekki að borða epli og perur, sem hjálpaði þó nokkuð. Fyrir hálfu ári rakst ég svo á LCHF og heyrði að fólk með ýmis magavandamál losnuðu við einkennin við að borða LCHF. Ég ákvað að prófa... og fyrstu tvær vikurnar voru draumur. Það var bara auðveldara að sleppa öllum kolvetnum, en að forðast eitthvað sérstakt og vera viss um hversu mörg grömm ég má borða. Það var erfitt að losna við sykurþráhyggjuna. En mér var ekki illt í maganum! Og í hvert skifti sem ég prófa "venjulegan mat" - fæ ég illt í magan! LCHF er bjargvættur minn og ég gæti ekki hugsað mér að snúa við aftur (nema einstaka svindl hér og þar). Og hér mun ég skrifa um allt LCHF sem ég geri, LCHF er risastórt í Svíþjóð, og hefur heilbrigðiskerfið loksins sagt að fita sé ekki bann, bann þar. Hérna í Danmörku eru fleiri og fleiri sem borða eftir LCHF... fita er ekki óvinurinn - það er sykurinn! Ykkar einlæg, Elísabet.

No comments:

Post a Comment